Ég heiti Hrafnhildur Eva! Lilypie Kids Birthday tickers

Mömmu og pabba finnst ég sætust af öllum. Það eru alltaf nýjar myndir á síðunni minni, ég lofa :)






Ég er litla englabarnið þeirra mömmu og pabba. Mamma mín heitir Kristjana María Ásbjörnsdóttir og pabbi minn heitir Bergur Þrastarson. Ég kom í heiminn þann 9. nóvember klukkan nákvæmlega 7:00 um morguninn. Ég var 49 cm og 12,5 merkur (3120 gr) Mömmu og pabba finnst það fín stærð þar sem að þau voru bæði 12 merkur þegar þau fæddust. Ég fór strax á brjóst og ég vil bara vera þar. nammi namm. Ég var með gráblá augu og brúnt hár ... frekar sítt að aftan. Ég var skírð Hrafnhildur Eva þann 11. desember heima hjá ömmu og afa í Hlaðbrekku. Ömmu mínar heita sko Hrafnhildur og Eva :)